Skip to main content

Posts

Featured

ArtHoliday í MögguHúsi í Frakklandi árið 2024

"Dásamlegur staður, það er svo skrítið að ferðin í fyrrasumar er eins og óraunverulegur draumur."    "Magnað svæði og ævintýraleg upplifun að dvelja þarna. Maður er nánast eins og á milli svefns og vöku og nær að endurnærast. Takk fyrir góðar stundir í Mögguhúsi og dásamlegu umhverfi."    Boðið er uppá námskeið  um vor,  sumar og haust.  Þetta er námskeið í vatnslitun og er ferðalag sem snýst um andlega næringu, upplifun, mystik og töfra listamannsins. Námskeiðið er fyrir byrjendur og lengra komna og hentar öllum sem unna listum og ævintýrum! Kjörið t.d. fyrir grunn, framhalds og leikskólakennara. Unnið er undir berum himni í náttúrunni, þorpunum í kring og á vinnustofu sem verið er að gera upp spölkorn frá húsinu. Dvölin er 7 nætur og þar af 4 kennsludagar og e in til tvær dagsferðir eru farnar til að skoða gallerí og söfn eða önnur menningarverðmæti. Hópurinn er fámennur eða aðeins fjórir og tekur sama flug og leigir bílaleigubíl saman.  Það sem þarf

Latest Posts